Velkomin í SpendSenze

Hvernig fæ ég aðgang að SpendSenze skýrslunni minni?

Þegar SpendSenze skýrslan þín er tilbúin til notkunar munt þú fá sendan tölvupóst með tilkynningu um þú hafir fengið aðgang að skýrslunni. Skýrslan sjálf opnast í Power BI í vafra og er hún tilbúin til notkunar strax frá fyrsta degi.

Fyrsta síðan sem tekur á móti þér er svokölluð yfirlitssíða. Hún sýnir samantekt frá nokkrum ólíkum sjónarhornum, og gefur góða vísbendingu um heildstæða mynd innkaupa fyrirtækisins. Þar má til að mynda sjá hvernig innkaupin þín skiptast á milli vöruflokka og birgja, og samanburð á innkaupatölum á milli mánaða og ára. Með því að smella á súlur eða reiti endurreiknast allar tölur miðað við það sem valið var.

Hér má sjá myndband sem fer stuttlega í gegnum nokkur af lykilatriðunum sem SpendSenze skýrslan þín getur varpað ljósi á.