Hvað er þetta Bitlocker? Er tölvan þín næst með Bitlocker?
BitLocker Drive dulkóðun er gagnaverndareiginleiki sem er hluti af Windows stýrikerfinu og tekur á ógnum um gagnaþjófnað eða hættum vegna týndra, stolna eða illa förguðum tölvum.
BitLocker veitir hámarksvörn þegar það er notað með Trusted Platform Module (TPM) útgáfu 1.2 eða nýrri útgáfum. TPM er vélbúnaðarhluti sem er settur upp í mörgum nýrri tölvum af tölvuframleiðendum. Það vinnur með BitLocker til að hjálpa til við að vernda notendagögn og tryggja að ekki hafi verið átt við tölvu á meðan kerfið var ótengt.
Bitlocker getur farið í gang sjálfkrafa við vissar aðstæður en er þó oftast sett í gang af notanda með samþykki. Vertu því viss um að þú sért með þessar upplýsingar aðgengilegar af eitthvað kemur upp og aflæsa þarf tölvunni.
Hvað þarf að gera ef tölvan er læst með Bitlocker?
Þegar tölvan er læst með Bitlocker dulkóðun frá Microsoft þarf lykil til að aflæsa gögnunum sem vistaður er á Microsoft reikning þínum eða hjá umsjónarmanni tölvukerfis ykkar.
Ef að þú skráir þig inn með venjulegum Microsoft reikning þá getur þú nálgast lykilinn þinn með því að skrá þig inn á hlekknum fyrir neðan með reikningnum sem er notaður til að skrá sig inn á vélina, en þar kemur listi yfir þau tæki sem eru skráð á þann reikning.
Ef notast er við fyrirtækja eða skólareikning til að skrá sig inn á vélina þá þarf að öllum líkindum að hafa samband við umsjónarmann tölvukerfisins til að nálgast aflæsingarlykilinn Hægt er að skrá sig inn á þessari vefslóð - https://account.microsoft.com/devices/recoverykey Einnig er hægt að skanna QR kóðann fyrir neðan og skrá sig inn þar
Nánari upplýsingar um Bitlocker má finna á síðu Microsoft