Nýskráning birgja
Þegar tengja á birgja og Timian innkaupaaðila er fyrsta skrefið í ferlinu að stofna birgjaaðgang. Það er gert með því að fara á slóðina supplier.timian.is og smella á Nýskráning.
Því næst þarf að fylla út viðeigandi upplýsingar, annars vegar um fyrirtækið sjálft, og hins vegar um notandann sem mun koma til með að nota birgjaaðganginn. Fylla þarf út alla stjörnumerkta reiti, og að því loknu má staðfesta.
Þar með hefur fyrirtækið og notandi þess verið stofnaður á birgjavef Timian, og hægt er að skrá sig inn með venjulegum hætti í framhaldinu.
Alltaf er hægt að bæra við notendum undir sama fyrirtæki, og er það gert með því að skrá sig inn á birgjavefinn, smella á Notendur í valstikunni og velja Nýr notandi.