Að tengja birgjavörur við samheitavörur

Hvernig er hægt að tengja nýjar birgjavörur við Timian samheitavörurnar?

Þegar birgjar hafa hlaðið nýjum vörulistum inn í Timian þá getur verið þörf á því að tengja samheitavörur við nýju birgjavörurnar, þar sem nýjar vörur tengjast ekki samheitavörum sjálfkrafa.

Þetta má gera undir Innkaup - Vörur og flipanum Samheitavörur.

Ef smellt er á hnappinn Vörur birgja, þá er þar hægt að leita að og velja birgjavöru sem á að tengja við samheitavöruna.

Tengingin er síðan gerð með því að smella með músinni á birgjavöruna sem á að bæta við, halda músartakkanum inni og draga vöruna yfir á samheitavöruna sem hún á að tengjast við.

Lokaskrefið er að smella á Geyma hnappinn sem birtist þegar maður hefur sameinað vörurnar, og þá hefur birgjavaran verið tengd við samheitavöru.

Hægt er að sjá hvaða birgjavörur eru tengdar hverri samheitavöru með því að smella á svörtu örina sem er vinstra megin við samheitavöruheitið.