Hægt er að nýta sér flýtileið til þess að eyða mörgum notendum úr kerfinu samtímis
Oft getur verið þörf á að eyða mörgum notendum úr kerfinu í einu, til dæmis þegar notendur Timian matarskráningar útskrifast úr skóla og munu þar með ekki þurfa að vera til í kerfinu lengur.
Undir Stillingar - Deildir má finna allar deildir/bekki kerfisins. Með því að velja deild/bekk birtast helstu stillingaratriði og skilgreiningar, og þar má jafnframt fara tvær leiðir að því að eyða úr kerfinu. Athugið að þegar notanda er eytt úr deild með þessum hætti þá er honum jafnframt eytt úr kerfinu í heild sinni.
Ef eyða á deild/bekk og jafnframt öllum notendum
- Neðst á deildarspjalinu er rauður hnappur sem stendur á Eyða.
- Ef notendur eru skráðir í deildina/bekkinn þá þarf að taka ákvörðun um hvað verður um þá. Hægt er að eyða öllum notendum úr kerfinu, eða færa þá í aðra deild/bekk.
- Sé nemanda eytt úr kerfinu þá verður forráðamönnum hans jafnframt eytt úr kerfinu, svo lengi sem forráðamennirnir beri ekki ábyrgð á öðrum nemendum í kerfinu. Ef svo er þá eyðast forráðamenn ekki út.
Ef eyða á völdum notendum úr bekk/deild
- Inni í deildarspjaldinu má finna flipann Notendur.
- Þar undir má finna alla þá notendur sem skráðir eru í deildina/bekkinn.
- Hægt er að haka við ákveðna (eða alla) nemendurna á listanum, en út frá því er hægt að velja á milli þess að eyða völdum notendum úr deild (og jafnframt úr kerfinu í heild sinni), eða að færa þá um deild/bekk.