Að breyta mörgum deildarheitum í einu

Hægt er að nýta sér flýtileið til þess að breyta mörgum deildarheitum samtímis.

Það getur komið sér vel að geta breytt mörgum deildarheitum á sama tíma, til dæmis þegar skólar byrja aftur að hausti og fyrsti bekkur er nú orðin annar bekkur, annar bekkur verður þriðji og svo framvegis.

Timian býður upp á flýtileið fyrir þetta, en undir Stillingar - Deildir má finna valmöguleikann "Breyta deildarkóðum og heitum". Þar má finna excel sniðmát þar sem hægt er að fylla inn heitin á þeim deildum sem á að breyta, og auk þess gefa þeim nýtt deildarheiti.

Þegar búið er að fylla út excel skjalið er hægt að hlaða því upp í Timian með því að haka í staðfestingu á innlestri og smella á Hlaða upp.

Þar með hefur deildarheitum verið breytt og notendur hafa verið fluttir yfir í "nýju" deildina.